Körfubolti

Kaninn tók við þjálfuninnni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/UMFG.is
Crystal Smith verður þjálfari Grindavíkur í Domino's-deild kvenna og verður Guðmundur Bragason henni til aðstoðar.

Smith kom til félagsins í haust frá Bandaríkjunum til að spila með liðinu, sem hún mun gera áfram.

Grindavík tapaði fyrstu fimm leikjum sínum á tímabilinu og hætti þá Bragi Magnússon með liðið. Grindavík vann næsta leik en tapaði svo naumlega fyrir Haukum.

Þetta fyrirkomulag verður reynt fram að áramótum en Guðmundur mun stýra liðinu í leikjum svo að Smith geti einbeitt sér að því að spila sjálf.

Grindavík mætir KR á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×