Körfubolti

Jakob með stórleik í sigri Drekanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons vann sinn annan leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, í þetta sinn gegn Stockholm Eagles á heimavelli, 94-71.

Jakob Örn Sigurðarson var stighæstur leikmanna Sundsvall með 24 stig en Hlynur Bæringsson átti einnig frábæran leik. Hann skoraði fjórtán stig og tók fjórtán fráköst. Báðir spiluðu í rúmar 30 mínútur.

Þá skoraði Pavel Ermolinskij sjö stig fyrir Norrköping Dolphins sem hafði betur gegn Solna Vikings á útivelli, 85-80.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×