Körfubolti

Pavel stigahæstur í tapleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij.
Pavel Ermolinskij. Mynd/Valli
Pavel Ermolinskij skoraði 18 stig fyrir Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en það dugði ekki því liðið tapaði með tíu stigum á móti Stockholm Eagles á heimavelli, 69-79.

Norrköping Dolphins hefur ekki byrjað nógu vel á tímabilinu því þetta var annað tap liðsins í fyrstu þremur umferðunum. Pavel var líka stigahæstur í hinum tapleiknum.

Pavel var auk stiganna 18 með 5 fráköst, 1 stoðsendingu og 1 stolinn bolta en hann var sjóðandi heitur fyrir utan þriggja stiga línuna og hitti úr 4 af 5 skotum sínum fyrir utan.

Liðsfélagar Pavels voru ekki að hitta vel í þessum leik og sem dæmi settu þeir aðeins niður 2 af 22 þriggja stiga skotum sínum í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×