Viðskipti erlent

Gríðarlegur hagnaður hjá eiganda Zöru

Verslun undir merkjum Zöru er meðal annars rekin í Smáralindinni.
Verslun undir merkjum Zöru er meðal annars rekin í Smáralindinni.
Smásölurisinn Inditex, sem meðal annars á vörumerkið Zöru, hagnaðist um 944 milljónir evra, eða 149 milljarða króna, á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaðurinn jókst um 32 prósent milli ára, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC um málið. Indetex rekur 5.693 verslanir í 85 löndum, en á fyrstu sex mánuðum ársins opnaði félagið 166 nýjar verslanir.

Sjá má frétt BBC um rekstur Inditex hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×