Obama einblínir á samskiptamiðla - heimsótti Reddit 30. ágúst 2012 10:36 Obama svaraði spurningum á Reddit í gær. mynd/twitter/barack obama
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sat óvænt fyrir svörum á vefsíðunni Reddit í gær. Nokkur þúsund spurninga bárust frá notendum síðunnar en forsetinn sá sér ekki annað fært en að svara aðeins tíu af þeim. Spurningarnar voru af ýmsum toga. Allt frá fjármálakreppunni og stöðu mála í Afganistan til mögulegrar löggjafar um vernd hugverka á veraldarvefnum. Spjallþráðurinn vakti gríðarlega athygli. Svo mikil var umferðin um síðuna að hún var nær hrunin á tímabili. Obama hefur verið iðinn við að nýta sér samskiptamiðla og er hann virkur á bæði Twitter og Facebook. Óvænt heimsókn Obama á Reddit í gær vakti mikla athygli, bæði í fjölmiðlum sem og í samskiptamiðlum. Þá er talið að forsetinn hafi viljað draga athygli frá flokksþingi Repúblikana sem nú fer fram í Tampa. Svo virðist sem Obama hafi tekist ætlunarverk sitt enda var spjallþráðurinn á Reddit á meðal vinsælustu umræðuefna á Twitter í gær.
Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira