Viðskipti erlent

Færeyingar ætla sér umskipunarhöfnina

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Þórshöfn í Færeyjum.
Frá Þórshöfn í Færeyjum.
Færeyskir ráðamenn vinna nú ötullega að því að gera Færeyjar að umskipunarhöfn vegna siglinga um Norðurpólinn og er búist við að málið verði rætt við kínverska sendiherrann í Danmörku, sem nú er í heimsókn í Færeyjum.

Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Johannesen, fjallaði sérstaklega um málið í ræðu á Ólafsvökunni, þjóðhátíð Færeyinga, í síðasta mánuði, og kom þar fram að hann sér fram á mikil tækifæri fyrir Færeyjar þegar siglingaleiðin opnast yfir Norðurpólinn. Þar sagði hann að Færeyingar yrðu að fara að búa sig undir auknar siglingar um Norðurhöf og kanna hvernig þeir gætu hagnast sem mest á þeim. Fram kom að stjórnvöld í Færeyjum væru þegar farin að vinna að þessu máli með því að greina ýmsa þætti, eins og að meta hvert umfang siglinganna gæti orðið.

Fyrr í sumar hafði atvinnumálaráðherra Færeyja, Johan Dahl, einnig rætt þessa stefnumörkun opinberlega þegar hann lýsti því yfir að eyjarnar ættu að stefna að því að verða umskipunarhöfn vegna norðurslóðasiglinga.

Færeysku ráðherrarnir láta ekki sitja við orðin tóm. Í júnímánuði tóku þeir málið upp í viðræðum við kínverska sendinefnd sem heimsótti Færeyjar.

Áhuginn virðist vera gagnkvæmur því nú er sendiherra Kína í Danmörku staddur í fjögurra daga opinberri heimsókn í Færeyjum og má telja líklegt að þessi mál beri þar á góma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×