Viðskipti erlent

Aukinn áhugi á Surface eftir sigur Apple

Talið er að niðurstaðan í dómsmáli Apple gegn suður-kóreska raftækjaframleiðandanum Samsung muni greiða veginn fyrir Microsoft. Tæknirisinn hefur brátt inngöngu sína inn á spjaldtölvumarkaðinn.

Microsoft kynnti fyrstu spjaldtölvu sína, Surface, í júlí og fer hún í beina samkeppni við iPad spjaldtölvu Apple og Samsung. Surface er knúinn af nýrri útgáfu af Windows stýrikerfinu, Windows 8. Microsoft leitar á ný mið með uppfærslunni en hún tekur mið af þeirri gríðarlegu aukningu sem orðið hefur í notkun snjallsíma og spjaldtölva á undanförnum árum.

Það á hins vegar eftir að koma í ljós hvort að Windows 8 getur í raun staðið í samkeppni við Android stýrikerfið. Á síðustu árum hafa vinsældir Android, sem framleitt er af Google, aukist gríðarlega og er það nú vinsælasta stýrikerfið fyrir snjallsíma og spjaldtölvur.

Aukinn áhugi er nú á Windows 8 og Surface spjaldtölvunni eftir að Samsung var sektað fyrir að brjóta á lögum um hugverkavernd. Ástæðan fyrir þessum áhuga er einföld: hugbúnaðarframleiðendur óttast málsókn af hálfu Apple.

Hið óbeina stríð sem Apple hefur háð gegn Samsung og Android stýrikerfinu gæti því orðið til þess að hugbúnaðarframleiðendur horfi frekar til Microsoft og Windows 8 stýrikerfinu.

Surface fer í almenna sölu í október á þessu ári. Hægt er að sjá kynningarmyndband fyrir spjaldtölvuna hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×