Körfubolti

18 þristar á 60 sekúndum - er þetta nýtt heimsmet?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dave Hopla setti að eigin sögn nýtt heimsmet í þriggja stiga körfum á einni mínútu þegar hann setti niður 18 þriggja stiga skot í röð á dögunum. Hopla hefur áður sett svona skotsýningu á svið en hefur aldrei gert betur en þarna.

Hopla hafði einn mann sér til aðstoðar sem tók við boltanum úr netinu og sendi hann aftur út fyrir þriggja stiga línuna þar sem Hopla beið sjóðheitur.

Hopla hitti úr öllum 18 skotum sínum og var vel fagnað þegar 18. og síðasta skotið rataði rétta leið. Það má sjá kappann setja heimsmetið með því að smella hér fyrir ofan en hann tók metið að sjálfsögðu upp og skellti því inn á Youtube.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×