Olinga sá yngsti til að skora í spænsku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2012 13:00 Fabrice Olinga fagnar hér með félögum sínum í gær. Mynd/AFP
Malaga þurfti að selja margar af stjörnum sínum fyrir tímabilið vegna fjárhagsvandræða og hetja liðsins í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar kom úr óvæntri átt. Hinn 16 ára gamli Fabrice Olinga tryggði liðinu 1-0 sigur á Celta Vigo í gær og setti um leið nýtt met í spænsku deildinni. Fabrice Olinga var þegar búinn að setja met þegar hann kom inn á völlinn enda yngsti leikmaðurinn til þess að spila fyrir Malaga-liðið í efstu deild. Hann var ekki hættur þar. Fabrice Olinga skoraði eina mark leiksins á 84. mínútu þegar hann fylgdi á eftir stangarskoti og skaut sér þannig inn í sögubækurnar. Fabrice Olinga er aðeins 16 ára og 98 daga gamall og bætti hann met Iker Munain sem var 16 ára og 289 daga gamall þegar hann skoraði fyrir Athletic Bilbao árið 2009. Fabrice Olinga er fæddur 12. maí 1996 og kemur frá Kamerún en fyrstu skrefin á fótboltavellinum tók hann í kringum fótboltamiðstöð Samuel Eto í heimalandinu. Olinga var áður í herbúðum RCD Mallorca en kom til Malaga árið 2011. Hann var allt í öllu hjá unglingaliði félagsins sem fór alla leið í bikarúrslitin á síðustu leiktíð.
Spænski boltinn Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira