Körfubolti

LA Lakers vilja klófesta Dwight Howard

Dwight Howard er eftirsóttur leikmaður þessa dagana.
Dwight Howard er eftirsóttur leikmaður þessa dagana. AP
Miðherjinn sterki, Dwight Howard, er einn stærsti „bitinn" á leikmannamarkaðinum í NBA deildinni í körfubolta. Howard hefur ekki áhuga á að semja við Orlando Magic að nýju og flest NBA lið vilja klófesta leikmanninn sem er á meðal bestu varnarmanna deildarinnar.

Samkvæmt heimildum íþróttafréttamanns Yahoo.com hafa forráðamenn LA Lakers óskað eftir fundi með Orlando Magic til þess að ræða um möguleg leikmannaskipti sem yrðu til þess að Howard myndi leika með LA Lakers.

Howard hefur lengi verið orðaður við Brooklyn Nets sem áður hétu New Jersey Nets. Talið er að Lakers vilji senda miðherjann Andrew Bynum til Orlando í skiptum fyrir Howard.

Kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash samdi á dögunum við LA Lakers og er honum ætlað að auka líkurnar á því að stórveldið eigi möguleika á að landa enn einum meistaratitlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×