Viðskipti erlent

Spánn óskar formlega eftir fjárhagsaðstoð

Höskuldur Kári Schram skrifar
Spánverjar óskuðu í dag eftir neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu til að bjarga bankakerfi landsins frá hruni.

Sérfræðingar telja að Spánverjar þurfi hundrað milljarða evra til að halda bankakerfinu á floti eða sem nemur um sextán þúsund milljörðum króna.

Efnahagsmálaráðherra Spánar sendi formlega beiðni um neyðarlán til Jean Claude Junckers, formanns Evruhópsins í morgun, en í bréfinu er ekki farið fram á ákveðna upphæð. Spánverjar vonast til þess að hægt verði að ganga frá láninu í byrjun næsta mánaðar en sjálfir telja þeir að sextíu millljarðar evra muni duga til að bjarga bankakerfinu.

Spánverjar hafa gengið í gegnum miklar efnahagsþrengingar á síðustu misserum. Atvinnuleysi er nú í kringum tuttugu og fimm prósent og spáð er áframhaldandi samdrætti á þessu ári.

„Mér finnst jákvætt að verið sé að bjarga bönkunum. Það er nauðsynlegt. Ég held samt að það ætti að draga mennina sem ollu þessu öllu til ábyrgðar, en nú hafa þeir allir skotið sér undan," segir Nicolas Saranana, viðskiptavinur Bankia.

„Þetta er hörmung. Það ætti að reka alla stjórnmálamenn burt og rýma til fyrir einhverja sem skilur þetta allt saman. Þeir ættu ekki að ræna svona mikið," segir ónefnd kona sem lifir í Madrid.

Leiðtogar evrópusambandsríkja koma saman til fundar í Brussel á fimmtudag til að ræða skuldavanda evruríkjanna. Verulegar verðlækkanir urðu á hlutabréfamörkuðum á Ítalíu og Spáni í dag en fjárfestar óttast að leitogarnir nái ekki samkomulagi um að aðgerðir til að draga úr vandanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×