Körfubolti

Helena meistari í Slóvakíu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena birti þessa mynd á Twitter-síðu sinni í kvöld þar sem hún fagnar meistaratitlinum með nokkrum lisðfélaga sinna.
Helena birti þessa mynd á Twitter-síðu sinni í kvöld þar sem hún fagnar meistaratitlinum með nokkrum lisðfélaga sinna.
Helena Sverrisdóttir varð í dag slóvakískur meistari í körfubolta en lið hennar, Good Angels Kosice, hafði talsverða yfirburði yfir andstæðinga sína í vetur.

Liðið var reyndar að fagna sínum níunda meistaratitli í röð en Helena gekk í raðir félagsins síðastliðið sumar. Kosice hafði betur gegn MBK Ruzomberok í úrslitarimmunni, 3-0, en leik liðanna í dag lauk með öruggum sigri Kosice, 72-41.

Helena skoraði fjögur stig í leiknum í dag en Kosice vann alla deildarleiki sína í vetur og átti því fullkomið tímabil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×