Guardiola hættur | Barcelona boðar til blaðamannafundar í dag 27. apríl 2012 10:30 Forráðamenn spænska fótboltaliðsins Barcelona hafa boðað til blaðamannafundar í hádeginu þar sem tilkynnt verður að Pep Guardiola sé hættur sem þjálfari liðsins. Getty Images / Nordic Star
Forráðamenn spænska fótboltaliðsins Barcelona hafa boðað til blaðamannafundar í hádeginu þar sem tilkynnt verður að Pep Guardiola sé hættur sem þjálfari liðsins. Hinn 41 árs gamli þjálfari hefur samkvæmt heimildum breskra netmiðla verið í viðræðum við stjórn félagsins um starfslok sín en samningur hans rennur út i lok leiktíðar. Sömu heimildir greina frá því að Guardiola hafi tilkynnt leikmönnum um ákvörðun sína á æfingu liðsins í morgun. Ákvörðun hins 41 árs gamla Spánverja kemur flestum á óvart en talið er að Guardiola vilji taka sér frí frá þjálfun. Gríðarleg álag hefur fylgt þessu starfi en Barcelona hefur unnið til 13 titla undir stjórn hans frá árinu 2008. Undir stjórn Guardiola hefur Barcelona fagnað Spánarmeistaratitlinum þrívegis og liðið hefur tvívegis unnið Meistaradeild Evrópu. Alls hefur liðið unnið 13 titla í þeim 16 keppnum þar sem Guardiola hefur komið við sögu sem þjálfari liðsins. Það eru án efa mörg lið sem hafa áhuga á að fá Guardiola til starfa. Að sjálfsögðu hefur nafn Chelsea á Englandi komið þar við sögu ásamt öðrum enskum liðum á borð við Arsenal, Liverpool og Manchester United. Spænskir fjölmiðlar greina frá því að það sé allt eins líklegt að Guardiola muni taka sér frí frá þjálfun í einhvern tíma.
Spænski boltinn Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Sjá meira