Skoraði 113 stig í leik í Líbanon Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. apríl 2012 23:45 Nordic Photos / Getty Images
Mohammad El Akkari komst í sögubækurnar þegar hann skoraði 113 stig í einum og sama körfuboltaleiknum í deildarleik í Líbanon. Þar með sló hann við goðsögninni Wilt Chamberlain sem skoraði 100 stig í leik með Philadelphia Warriors í NBA-deildinni árið 1962. Það met stendur enn í NBA-deildinni en Kobe Bryant komst næst því þegar hann skoraði 81 stig í leik með LA Lakers árið 2006. Fram kemur í yfirlýsingu Alþjóðakörfuknattleikssambandsins að þetta sé í fyrsta sinn sem leikmaður skorar meira en 100 stig í deildarleik í Asíu. Akkari leikur með Moutahed sem hafði betur í miklum stigaleik gegn Bejeeh í efstu deild í Líbanon, 173-141. Hann setti niður 32 þrista í leiknum en alls tók hann 59 þriggja stiga skot. Hann nýtti 40 af 69 skotum sínum í opnu spili og skoraði aðeins eitt stig af vítalínunni allan leikinn. Akkari er 27 ára gamall og hafði fyrir leikinn aðeins skorað 7,6 stig að meðaltali í leik. „Ég held að þetta sé árangur æfinga minna. Ég vil líka þakka þjálfaranum fyrir að hafa leyft mér að spila mikið í leiknum og öllum liðsfélögunum fyrir að hjálpa mér." Einn liðsfélaga Akkari er Bandaríkjamaðurinn Austin Johnson. „Hann var að skjóta vel og hélt því bara áfram. Við gerðum okkur grein fyrir því að hann væri sjóðheitur og komum boltanum á hann. Ég óska honum til hamingju - hann á þetta skilið."
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira