Viðskipti erlent

Facebook kaupir Instagram

Mark Zuckerberg er aðaleigandi Facebook.
Mark Zuckerberg er aðaleigandi Facebook. mynd/afp.
Facebook hefur tilkynnt að fyrirtækið muni kaupa Instagram, sem er vinsælt app í snjallsímum. Facebook greiðir um 1 milljarð dala, eða 127 milljarða króna, í reiðufé og hlutabréf fyrir viðskiptin. Instagram fór í loftið í október 2010. Það var upphaflega hugsað fyrir iPhone en síðan fyrir Android. Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, heitir því að Instagram verði þróað áfram þannig að fleiri geti notað það.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×