Körfubolti

Jón Arnór áfram hjá CAI Zaragoza

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu.
Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Arnþór
Jón Arnór Stefánsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við spænska úrvalsdeildarfélagið CAI Zaragoza. Þetta kom fram á karfan.is í dag.

„Þetta er flottur klúbbur og okkur fjölskyldunni líður vel hérna úti þannig að í raun var þetta ekkert erfitt fyrir mig að ákveða þetta," sagði hann í samtali við Körfuna.is.

„Þetta hefur gengið bara nokkuð bærilega hjá okkur í vetur við erum sem stendur inni í úrslitakeppninni en þetta er þéttur pakki og mun líkast til ekki ráðast fyrr en í lokaumferðinni. Svo byggjum við ofaná þann árangur sem næst í vetur."

Zaragoza er sem stendur í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar og því í góðri stöðu fyrir úrslitakeppnina. Jón Arnór hefur spilað 26 leiki á tímabilinu og skorað í þeim um átta stig að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×