Körfubolti

Jón Arnór með sex stig í sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Arnþór
CAI Zaragoza hafði betur gegn Unicaja, 76-59, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Jón Arnór Stefánsson skoraði sex stig í leiknum.

Jón Arnór spilaði í rúmar 30 mínútur fyrir lið Zaragoza en náði aðeins að nýta eina af fimm þriggja stiga rilraunum sínum í leiknum. Hann gaf þrjár stoðsendingar í leiknum og tók eitt frákast.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Jón Arnór og félagar tóku völdin í þeim síðari og skoruðu þá 42 stig gegn aðeins 26 hjá Unicaja.

Zaragoza er í sjötta sæti deildarinnar en átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×