Körfubolti

Helena og félagar úr leik í Evrópukeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með Good Angels.
Helena Sverrisdóttir í leik með Good Angels. Nordic Photos / Getty Images
Helenu Sverrisdóttur og félögum hennar í slóvakíska liðinu Good Angels Kosice tókst ekki að tryggja sér sæti í fjórðungsúrslitum Evrópukeppni kvenna í körfubolta.

Liðið tapaði í kvöld fyrir UMMC Ekaterinburg frá Rússlandi, 75-49, á heimavelli sínum í Kosice. Rússarnir unnu fyrsta leik liðanna á þriðjudagskvöldið en tvo sigra þurfti til að komast áfram í 8-liða úrslitin.

Eins og tölurnar bera með sér var sigurinn öruggur. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en svo skildu leiðir. Staðan í hálfleik var 43-29, Ekaterinburg í vil.

Helena skoraði tvö stig á þeim átján mínútum sem hún spilaði í leiknum. Hún tók fjögur fráköst þar að auki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×