Viðskipti erlent

IBM boðar tímamót í tækniþróun mannkyns

Talið er að vísindamenn hjá tæknifyrirtækinu IBM hafi tekið mikilvægt skref í þróun skammtatölvunnar sem er af mörgum talin hið heilaga gral vísindanna. Vísindamennirnir munu kynna niðurstöður sínar seinna í dag.

Hefðbundnar tölvur skilja upplýsingar í bætum. Þessi bæti miðla upplýsingum í gegnum tvenndarástand sitt - þau eru annað hvort virk eða óvirk. Skammtatölvan, aftur á móti, skilur upplýsingar í skammtabitum. Hvert einasta skammtabit er til í öllum mögulegum ástöndum og eru ekki einskorðuð við virk eða óvirk heldur allt þar á milli.

Skammtatölvan getur því nálgast allar þær upplýsingar sem til eru fyrir hendi samstundis. Það magn upplýsinga sem 250 skammtabita tölva gæti geymt getur því auðveldlega verið meira en allar agnir alheimsins.

En skammtabitar eru afar viðkvæmar agnir og hingað til hefur vísindamönnum reynst erfitt að vinna með þá. Talið er að vísindamenn IBM hafi fundið leið til að vinna með skammtabitana.

Tilkoma skammtatölvunnar myndi marka tímamót í tækniþróun mannkyns og myndi kalla á endurskoðun á nær öllum innviðum samfélagsins. Til dæmis þyrfti að endurskoða öll lykilorð veraldar enda gæti skammtatölvan sannreynt alla möguleika á innan við sekúndu.

Hægt er að sjá kynningarmyndband um rannsóknina hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×