Körfubolti

Helena næststigahæst í öruggum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir, leikmaður Good Angels.
Helena Sverrisdóttir, leikmaður Good Angels.
Helena Sverrisdóttir átti góðan leik þegar að lið hennar, Good Angels Kosice frá Slóvakíu, vann sigur á Frisco Brno í lokaumferð riðlakeppni Evrópukeppni kvenna í körfubolta.

Helena skoraði tólf stig í leiknum og tók þar að auki sjö fráköst ásamt því að hún stal boltanum þrívegis. Alls spilaði hún í 20 mínútur og var næststigahæsti leikmaður liðsins.

Good Angels tryggði sér með sigrinum þriðja sæti C-riðils en efstu fimm liðin úr hverjum riðlum komast áfram í útsláttarkeppnina sem í þetta sinn telur fjórtán lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×