Körfubolti

Sigur hjá Jóni Arnóri en tap hjá Hauki

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/VILHELM
Jón Arnór Stefánsson skoraði 6 stig fyrir Zaragoza sem sigraði Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Haukur Helgi Pálsson og félagar í Manresa töpuðu fyrir Joventut 92-79.

Zaragoza tók öll völd á vellinum strax í fyrsta leikhluta. Liðið lék frábær vörn og var fjórtán stigum yfir í hálfleik 43-29. Auk þess að skora sex stig í leiknum hirti Jón Arnór 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu en hann lék í 21 mínútu.

Manresa var yfir gegn Joventut í hálfleik 47-43 en Joventut gerði út um leikinn í þriðja leikhluta þegar liðið skoraði 28 stig gegn 15. Líkt og í þriðja leikhluta var sóknarleikur Manresa bitlaus í fjórða leikhluta og því náði liðið aldrei að gera atlögu að forystu Joventut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×