Skattheimta: 450 þúsund verða að 179 þúsundum 24. janúar 2011 12:00 Benedikt Jóhannesson tók saman skattagreiðslur fyrir Bítið á Bylgjunni
Einstaklingur með 450 þúsund krónur í mánaðarlaun fær 40 prósent af þeim til rástöfunar og aðeins 33 prósent ef launatengd gjöld eru tekin með, þegar hið opinbera hefur tekið sitt. Þetta er niðurstaða úr útreikningum, sem Benedikt Jóhannesson stærðfræðingur hjá Talnakönnun, reiknaði út fyrir þáttinn Bítið á Bylgjunni, og greint var frá í morgun. Niðurstöðurnar eru byggðar á upplýsingum úr Fjármálaráðuneytinu, Samtökum íslenskra sveitarfélaga, Hagstofunni, Samtökum atvinnulífsins, verkalýðsfélögum og lífeyerissjóðum. Hér er aðeins skoðað hvert launatekjurnar fara en ekki hvað kemur á móti, til dæmis greiðslur frá Tryggingastofnun, barnabætur, vaxtabætur og fleira. Þá eru greiðslur í lífeyrissjóði ekki reiknaðar inn sem ráðstöfunartekjur, þótt þær myndi sparnað. Sama á við um félagsgjöld og fleiri gjöld, þau eru ekki ráðstöfunartekjur. Viðmiðunartalan hér er 450 þúsund krónur á mánuði, sem áður segir, en hún er um það bil 60 þúsund krónum yfir meðallaunum í landinu. Hlutfall ráðstöfunartekna hækkar eftir þvi sem launin lækka. Þannig hefur einstaklingur með aðeins 325 þúsund króna mánaðarlaun 45 prósent af þeim í ráðstöfunartekjur á móti 40 prósentum í hærra dæminu. Hlusta má á viðtal við Benedikt úr Bítinu í morgun með því að smella hér, eða á tengilinn hér að ofan.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira