Körfubolti

Hlynur með þrefalda tvennu í sigurleik gegn Borås

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson.
Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli

Hlynur Bæringsson fór enn og aftur á kostum í liði Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Hlynur skoraði 11 stig, tók 15 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í 88-81 sigri liðsins gegn Borås Basket.

Jakob Sigurðarson lék einnig vel með Sundsvall en hann skoraði 14 stig, tók 7 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Sundsvall er í efsta sæti deildarinnar með 38 stig en LF Basket kemur þar á eftir með 36 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×