Körfubolti

Helena að spila vel með TCU-liðinu - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir hefur farið á kostum að undanförnum með liði TCU í bandaríska háskólakörfuboltanum en góð frammistaða hennar á mikinn þátt í því að liðið er búið að vinna sjö leiki í röð.

Helena er efst í liðinu í stoðsendingum (4,1) og stolnum boltum (2,4) og í öðru sæti í stigaskori (16,3) og í fráköstum (6,6). Hún hefur þegar skorað 34 þriggja stiga körfur á tímabilnu.

Það má sjá skemmtilegt myndband með helstu tilþrifum Helenu í vetur með því að smella hér fyrir ofan er TCU-liðið er til alls líklegt í Mountain West deildinni þar sem liðið hefur unnið fimm fyrstu leikina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×