Lífið

Pabbi á ný

pabbi á ný
Robert Di Niro eignaðist sitt sjötta barn á dögunum.
nordicphotos/getty
pabbi á ný Robert Di Niro eignaðist sitt sjötta barn á dögunum. nordicphotos/getty
Stórleikarinn Robert De Niro og eiginkona hans Grace Hightower De Niro eignuðust sitt annað barn á dögunum og var það lítil stúlka sem hlaut nafnið Helen Grace.

Stúlkan fæddist með aðstoð staðgöngumóður en fyrir eiga hjónin þrettán ára gamlan son, Elliot. De Niro er 68 ára gamall og Hightower er 56 ára gömul en þau hafa verið saman frá árinu 1987. De Niro á nú alls sex börn og er það elsta fertugt að aldri og því töluverður aldursmunur á því elsta og yngsta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×