Lífið

Ekki hrifinn af framhaldi

leika saman Robert Downey Jr. ásamt mótleikara sínum í Sherlock Holmes, Jude Law.
leika saman Robert Downey Jr. ásamt mótleikara sínum í Sherlock Holmes, Jude Law.
Robert Downey Jr. segist ekki vera aðdáandi framhaldsmynda þrátt fyrir að hafa leikið í Iron Man 2 og Sherlock Holmes: A Game of Shadows, sem er á leiðinni í bíó. „Mér finnst leiðinlegt að segja það en venjulega eru framhaldsmyndir leiðinlegar, en þessi er það þó ekki,“ sagði hann.

Guy Ritchie leikstýrir framhaldsmyndinni eins og þeirri fyrri og Downey segir að honum hafi tekist enn betur upp en síðast. „Þetta er spennu- og ævintýramynd en grínið er aldrei langt undan, sem er alltaf skemmtilegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×