Lífið

Vinnan eyðilagði allt

sátt Scarlett Johansson kveðst sátt við bæði hjónaband sitt og skilnað í nýju viðtali við Cosmopolitan.
sátt Scarlett Johansson kveðst sátt við bæði hjónaband sitt og skilnað í nýju viðtali við Cosmopolitan.
Scarlett Johansson hefur viðurkennt í viðtali við Cosmopolitan að vinnuálagið hafi eyðilagt samband hennar og Ryans Reynolds. Þar að auki hafi hún ekki verið reiðubúin til að færa þær fórnir sem hjónaband krefjist.

Johansson og Reynolds slitu samvistum í lok 2010 og gengu frá skilnaðinum í júlí á þessu ári. Hann vakti mikla athygli enda voru hjónakornin ákaflega áberandi á meðal hinna ríku og frægu í Hollywood.

„Sambönd eru flókin og að vera í hjónabandi er samstarf. Ég var ekki fyllilega meðvituð um allir hæðirnar og lægðirnar og ég var ekki reiðubúin til að takast á við það síðarnefnda. Við höfðum bæði ótrúlega mikið að gera og vorum mikið í sundur,“ segir leikkonan kunna.

Johansson sér hins vegar ekkert eftir hinu stutta sambandi. „Ég trúi á að þegar manni finnst eitthvað rétt þá eigi maður að gera það. Ég trúi á innsæið. Að giftast var rétt því það kom af sjálfu sér. Hjónabandið var ávöxtur ástar og rómantíkur og löngunar til að eiga framtíð með einhverjum. Og ég var heppin að giftast manni sem reyndist vera nákvæmlega sá sem ég hélt að hann væri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×