Lífið

Djokovic í Expendables

leikur í expendables Tenniskappinn Novak Djokovic leikur í The Expendables 2.
leikur í expendables Tenniskappinn Novak Djokovic leikur í The Expendables 2.
harður Stallone fer fyrir helstu harðhausunum í Hollywood í Expendables.
Tenniskappinn Novak Djokovic hefur fengið hlutverk í hasarmyndinni The Expendables 2. Hinn 24 ára Serbi fékk boð um að leika í myndinni frá framleiðandanum Avi Lerner og er þessa dagana á tökustað í Búlgaríu. Djokovic, sem er í efsta sæti heimslistans í tennis, fer með lítið hlutverk sem þorpari og mun leika á móti sjálfum Sylvester Stallone.

Myndin er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári. Fjöldi vöðvabúnta og hasarmyndahetja leikur í myndinni, þar á meðal Jason Statham, Bruce Willis og Arnold Schwarzenegger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×