Lífið

Komin lengra á leið

Barnalán Kelly Rowland, fyrrverandi samstarfskona Beyonce úr Destiny‘s Child, kom á dögunum upp um það að parið ætti von á dóttur.
Barnalán Kelly Rowland, fyrrverandi samstarfskona Beyonce úr Destiny‘s Child, kom á dögunum upp um það að parið ætti von á dóttur.
Verið gæti að söngkonan Beyonce sé komin lengra á leið með fyrsta barn sitt og rapparans Jay-Z en áður var haldið.

Parið hafði áður tilkynnt að fæðingardagur barnsins yrði í febrúar, en nýleg myndbandsupptaka af Beyonce sem rataði á netið á dögunum hefur heldur betur ruglað fólk í ríminu. Í myndbandinu, sem tekið er í september, segist hún vera komin sex mánuði á leið og glöggir aðdáendur söngkonunnar áttuðu sig strax á að það leiddi af sér að von væri á barninu í desember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×