Lífið

Nýtt lag frá Einari Ágústi

einar ágúst Söngvarinn vinnur nú að eigin útgáfu af SúEllen smellinum Svo blind.fréttablaðið/Valli
einar ágúst Söngvarinn vinnur nú að eigin útgáfu af SúEllen smellinum Svo blind.fréttablaðið/Valli
„Ég er með margt skemmtilegt í pípunum varðandi músík,“ segir tónlistarmaðurinn Einar Ágúst Víðisson, sem sent hefur frá sér sitt fyrsta lag í rúm fjögur ár.

Einar Ágúst, sem er best þekktur úr hljómsveitinni Skítamóral, hefur ávallt verið iðinn við lagasmíðar og samdi mörg vinsælustu lög hljómsveitarinnar á sínum tíma. Í þetta sinn sá hann þó ekki um lagasmíðina, en nýja lagið heitir The Lights In Your Eyes og er samið af ungum og efnilegum tónlistarmanni, Andra Ramirez, sem gengur undir nafninu Prostarz.

Andri stundar nám í hljóðtæknifræði í Bretlandi og hefur verið iðinn við að semja tónlist og koma sér á framfæri ytra. Aðspurður útilokar Einar Ágúst ekki frekara samstarf þeirra á milli. „Við Andri erum að skoða ýmislegt. Ég er að velta fyrir mér texta við eitt lag eftir hann í augnablikinu. Þessi drengur lofar virkilega góðu.“

Einar Ágúst gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2007 og fylgdi henni á eftir með mikilli spilamennsku. Eftir útgáfuna dró hann svo mikið úr afskiptum sínum af tónlist, þótt hann héldi áfram lagasmíðum. Inntur eftir því hvort hann hafi ekki saknað tónlistarinnar og þess að koma fram segir hann hléið hafa verið kærkomið.

„Stundum þarf maður bara frí frá þessu eins og öðru. Það var mjög gaman að byrja að vinna við útvarp aftur þegar ég byrjaði á Kananum vorið 2010 en það er ákveðið „performance“ í því líka. Ég held að ég hafi mögulega „spilað yfir mig“ á árunum 2006-2010. En ég er og mun alltaf verða tónlistarmaður og gera músík.“ - bb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×