Lífið

Höfundur Disco Frisco gefur út

von Stefán S. Stefánsson, fyrrverandi forsprakki Ljósanna í bænum, hefur gefið út plötuna Von. fréttablaðið/gva
von Stefán S. Stefánsson, fyrrverandi forsprakki Ljósanna í bænum, hefur gefið út plötuna Von. fréttablaðið/gva
Stefán S. Stefánsson, fyrrverandi forsprakki hljómsveitarinnar Ljósin í bænum, hefur gefið út plötuna Von.

„Tónlistin er nokkuð rökrétt framhald af fyrri útgáfum mínum með Ljósunum í bænum en síðasta plata með þeim kom út um 1980," segir Stefán og bætir við að textarnir séu af jákvæðum toga.

„Þess vegna skíri ég diskinn Von, eftir einu laganna sem fjallar um það sem heldur okkur á floti dag frá degi: Vonina." Djassskotin popptónlist hljómar á plötunni og söngvarar eru þau Regína Ósk og Þór Breiðfjörð.

Stefán er höfundur laga á borð við Disco Frisco, Tunglið, tunglið taktu mig og Fallinn. Spurður hvort hann fái ekki rífleg stefgjöld á hverju ári segist hann fá þokkalega tölu.

„En hún dugir kannski ekki fyrir ferð til Balí. En það kemur alltaf á óvart að þessir gömlu slagarar skuli standa af sér öll þessi ár og veður og vinda."

Stefán starfar sem skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar. Einnig hefur hann spilað með Stórsveit Reykjavíkur og stundað kennslu í FÍH.

„Núna er ég búinn að gera hreint fyrir mínum dyrum í þessum málaflokki. Það er smá hreinsun að koma þessu efni út og ég vona bara að einhverjir hafi gaman af þessu." - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×