Lífið

Skotin í Jeff Bridges

best að vera ein Williams hefur ekki verið í sambandi síðan hún hætti með leikstjóranum Spike Jonze árið 2009.
best að vera ein Williams hefur ekki verið í sambandi síðan hún hætti með leikstjóranum Spike Jonze árið 2009.
Leikkonan hæfileikaríka Michelle Williams, sem nýlega fór með hlutverk Marilyn Monroe í kvikmynd um ævi hennar, viðurkennir að hún sé rosalega skotin í gamla brýninu Jeff Bridges.

Williams setur rúmlega þriggja áratuga aldursmuninn ekki fyrir sig, en hún hitti Bridges eitt sinn á rauða dreglinum og segist ekki hafa vitað hvernig hún ætti að haga sér.

„Hann var með sólgleraugu og sneri sér við og heilsaði mér. Ég óskaði þess að ég væri líka með sólgleraugu svo ég gæti falið mig á bak við þau,“ sagði Williams í viðtali við breska blaðið Hello.

Williams sagði við sama tilefni að besta sambandsráðið sem hún gæti gefið öðrum konum væri að sleppa því einfaldlega að byrja í sambandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×