Lífið

Tökum lokið á Batman

í góðum félagsskap Christian Bale er laus við Batman-búninginn. Þeir sem áður hafa leikið Leðurblökumanninn eru Adam West, Michael Keaton, Val Kilmer og George Clooney.
í góðum félagsskap Christian Bale er laus við Batman-búninginn. Þeir sem áður hafa leikið Leðurblökumanninn eru Adam West, Michael Keaton, Val Kilmer og George Clooney.
Leikarinn Christian Bale hefur leikið ofurhetjuna Batman í síðasta sinn. Tökum er lokið á þriðju og síðustu Batman-myndinni sem Bale gerir í samstarfi við leikstjórann Christopher Nolan, en saman hafa þeir endurvakið vinsældir leðurblökumannsins.

Myndarinnar, The Dark Knight Rises, er beðið með mikilli eftirvæntingu en fyrri myndirnar tvær hafa verið mjög vinsælar um allan heim og rakað inn milljörðum dollara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×