Lífið

Pattinson snæðir með aðdáanda

Umsetinn Robert Pattinson reynir oftar að fela sig fyrir aðdáendum en að bjóða þeim út.
Umsetinn Robert Pattinson reynir oftar að fela sig fyrir aðdáendum en að bjóða þeim út.
Robert Pattinson hefur viðurkennt að hafa eitt sinn boðið aðdáanda sínum út að borða, því honum leiddist svo mikið. Pattinson var þá staddur á Spáni í kvikmyndatökum og tók eftir stúlku sem hafði beðið fyrir utan íbúð hans á hverjum degi í þrjár vikur.

Margar stúlkur hefðu eflaust viljað vera í hennar sporum þegar hann bauð stúlkunni að eyða kvöldinu með sér. Pattinson segist hafa notað tækifærið til að kvarta undan öllu í lífi sínu yfir kvöldverðinum, en var síðan mjög hissa þegar hann sá stúlkunni aldrei bregða fyrir aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×