Lífið

Æskuvinir opna skemmtistað á Egilsstöðum

Framtakssamir Nýi skemmtistaðurinn verður til húsa í gömlu símstöðinni á Egilsstöðum og dregur nafn sitt af byggingunni
Framtakssamir Nýi skemmtistaðurinn verður til húsa í gömlu símstöðinni á Egilsstöðum og dregur nafn sitt af byggingunni
„Nú erum við bara að bíða eftir tilskyldum leyfum og stefnan er að opna staðinn um næstu mánaðamót,“ segir Baldur Gauti Gunnarsson, einn þriggja ungra frumkvöðla sem ákváðu að hætta að sitja heima um helgar og opna í stað þess nýjan skemmtistað á Egilsstöðum.

Þeir Baldur, Andri Valsson og Sigbjörn Þór Birgisson eru allir fæddir og uppaldir á Egilsstöðum og hafa á síðustu misserum flutt aftur í heimabæinn eftir námsdvöl í Reykjavík og erlendis.

Þrátt fyrir stærð Egilsstaða og þjónustuhlutverk bæjarins fyrir Austurland hefur verið heldur dauft yfir skemmtanalífi íbúa síðustu mánuði. Fréttablaðið sagði frá lokun Kaffi Egilsstaða í sumar, og enginn skemmtistaður hefur verið starfræktur í bænum síðan.

„Það hefur náttúrulega bara verið hundleiðinlegt. Ef ég væri tvítugur fyndist mér ekkert rosalega gaman hérna. Skemmtistaðir eru auðvitað hálfgerðar undirstöðustofnanir í samfélögum.“ Baldur segir þá félagana hafa rætt hugmyndina meira í gríni en af alvöru fyrst um sinn og ekki ákveðið að slá til fyrr en fyrir rúmum mánuði síðan.

„Það þýðir ekki að væla endalaust yfir því að aðrir geri ekki hlutina, maður verður bara að gera þá sjálfur. Svo er óneitanlega mjög skemmtilegt að geta gert eitthvað fyrir samfélagið hérna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×