Lífið

Þögul sem gröfin

Kristen stewart Vill lítið ræða um ástarsamband sitt og einkalífið við fjölmiðla.nordicphotos/getty
Kristen stewart Vill lítið ræða um ástarsamband sitt og einkalífið við fjölmiðla.nordicphotos/getty
Kristen Stewart hefur ávallt verið mjög þögul um samband sitt og mótleikara síns, Roberts Pattinson. Í viðtali við Glamour segist hún kjósa að ræða sem minnst um sambandið.

„Mér er nokk sama hvað fólk segir, það má segja það sem það vill. En þegar einkalíf manns verður eins konar söluvara þá finnst mér það andstyggilegt. Ég vil ekki gefa fólki hlutdeild í einkalífi mínu, það er eins og að gefa þeim dýrmæta gimsteina. Þess vegna reyni ég að segja sem minnst um mitt einkalíf og í raun finnst mér áhugi fólks á því svolítið fyndinn,“ sagði leikkonan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×