Lífið

Sér eftir lýtaaðgerð

harmar brjóstaaðgerð Leikkonan Denise Richards sér eftir því að hafa gengist undir hnífinn á sínum yngri árum.nordicphotos/getty
harmar brjóstaaðgerð Leikkonan Denise Richards sér eftir því að hafa gengist undir hnífinn á sínum yngri árum.nordicphotos/getty
Denise Richards harmar það að hafa gengist undir brjóstastækkun þegar hún var ung. Leikkonan segist full af sjálfstrausti í dag en var það ekki á sínum yngri árum.

„Ég gekkst fyrst undir hnífinn þegar ég var nítján ára gömul. Í dag óska ég þess að ég hefði verið nógu örugg með sjálfa mig og sleppt aðgerðinni. Ég vona að ég nái að ala dætur mínar þannig upp að þær verði ánægðar með sig og líkama sinn. Það að vera ánægður með sjálfan sig og vaxtarlag sitt er mikill kostur,“ sagði leikkonan í nýlegu viðtali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×