Bauhaus íhugar að opna verslun 31. ágúst 2011 06:15 Stórhýsi Bauhaus við Vesturlandsveg hefur að mestu staðið autt frá því að framkvæmdum við það lauk um mitt ár 2008. Fréttablaðið/GVA
Þýska byggingavöruverslanakeðjan Bauhaus skoðar nú alvarlega að opna verslun á Íslandi. Fyrirtækið hugðist opna verslun hér á landi í lok árs 2008 en frestaði þeim áætlunum um ótiltekinn tíma þegar bankahrunið skall á. „Við teljum að það sé að nást stöðugleiki aftur á Íslandi en það var forsenda þess að við skoðuðum opnun,“ segir Mads Jörgensen, forstjóri Bauhaus á Norðurlöndunum, og bætir við: „Þar sem við eigum byggingu sem er til reiðu fyrir starfsemi væri eðlilegt fyrir okkur að meta núna hvenær rétti tíminn sé til að opna.“ Jörgensen heimsótti Ísland nýverið ásamt Kenn Pedersen, sölu- og markaðsstjóra Bauhaus á Norðurlöndunum. Komu þeir hingað í þeim erindagjörðum að meta stöðuna í hagkerfinu og hafa haft opnun til skoðunar síðan. Þegar bankahrunið varð haustið 2008 hafði Bauhaus reist um 20 þúsund fermetra húsnæði undir Úlfarsfelli við Vesturlandsveg. Þá höfðu tugir starfsmanna verið ráðnir til fyrirtækisins en þeim var öllum sagt upp í kjölfar hrunsins.- mþl
Fréttir Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Sjá meira