Lífið

Veisla í Sambíóunum

Sambíóin ætla að blása til Kvikmyndadaga í Kringlunni og sýna kvikmyndir sem farið hafa sigurför um heiminn. Opnunarmynd hátíðarinnar verður Tree of Life eftir Terence Malick en hluti hennar var tekinn hér á landi. Með aðalhlutverkin fara þeir Brad Pitt og Sean Penn. Myndin vann Gullpálmann á Cannes á þessu ári.

Þá verður dýrasta kvikmynd Asíu, Red Cliff, einnig sýnd á hátíðinni en hún er eftir John Woo sem hefur getið sér gott orð fyrir hasarmyndir sínar í Hollywood. Sambíóin ætla einnig að sýna Beaver, kvikmynd Mels Gibson í leikstjórn Jodie Foster en hún er fyrsta kvikmynd ástralska leikarans eftir stöðug vandamál í einkalífinu. Þá verður myndin Fair Game sýnd en hún skartar Sean Penn og Naomi Watts í aðalhlutverkum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×