Lífið

Nú verður kátt í höllinni

Fjölgar í fjölskyldunni Jóakim prins og Marie eiga von á sínu öðru barni í janúar. Þetta er fjórða barn Jóakims og áttunda barnabarn Margrétar Þórhildar.
NordicPhotos/Getty
Fjölgar í fjölskyldunni Jóakim prins og Marie eiga von á sínu öðru barni í janúar. Þetta er fjórða barn Jóakims og áttunda barnabarn Margrétar Þórhildar. NordicPhotos/Getty
Það ríkir mikil gleði við dönsku hirðina eftir að tilkynnt var um að Marie prinsessa væri barnshafandi. Hún og maðurinn hennar, Jóakim prins, eiga von á barni í janúar og verður prinsinn því brátt fjögurra barna faðir. Marie og Jóakim eiga fyrir hinn tveggja ára gamla Henrik en Jóakim eignaðist tvö börn með prinsessunni Alexöndru. Spákona heldur því fram að hjónin eigi von á strák.

Ekki verður annað sagt en að danska hirðin fjölgi sér ört því Friðrik krónprins og eiginkona hans, Mary Donaldson, eignuðust fyrr á þessu ári tvíbura og áttu fyrir tvö börn. Margrét Þórhildur Danadrottninng mun því vart hafa undan að kaupa gjafir handa öllum átta barnabörnunum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×