Lífið

Leikarar á hestatónleikum Helga

tónleikar í háskólabíói Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna spila í Háskólabíói ásamt Hilmi Snæ, Atla Rafni og Gísla Erni.
tónleikar í háskólabíói Helgi Björnsson og Reiðmenn vindanna spila í Háskólabíói ásamt Hilmi Snæ, Atla Rafni og Gísla Erni.
f
„Við ætlum að búa til hestastemningu og taka tónleikana aðeins í aðrar áttir,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson.

Helgi og hljómsveitin Reiðmenn vindanna halda tónleika í Háskólabíói 8. október. Með þeim á sviðinu verða vinir Helga, leikararnir og hestamennirnir Hilmir Snær Guðnason, Atli Rafn Sigurðarson og Gísli Örn Garðarsson. Óvíst er reyndar með þátttöku Gísla Arnar þar sem hann mun leikstýra Hróa hetti í London um svipað leyti. „Við ætlum að setjast niður og taka órafmagnaðar útgáfur fremst á sviðinu. Við ætlum að deyfa ljósin og búa til hestastemningu. Við ætlum að taka lög sem eru sungin mikið í hestaferðum. Þetta verður mjög skemmtilegt og auðvitað verður húmor og sprell líka,“ greinir Helgi frá, ánægður með þátttöku leikaranna enda hafa þeir farið saman í fjölda reiðtúra.

„Það verður gaman að fá þá. Þeir eru vanir að vera með þögla áhorfendur í salnum en þarna geta þeir aðeins leyft sér að sprella.“

Að sögn Helga verða þetta fyrstu alvöru tónleikar hans og Reiðmannanna. Þeir hafa tvívegis stigið á svið í sumar. Fyrst á Bestu útihátíðinni og svo á Akureyri um verslunarmannahelgina.

Þrjár hestaplötur þeirra hafa selst eins og heitar lummur, eða í um 25 þúsund eintökum samanlagt. Sú nýjasta, Ég vil fara upp í sveit, hefur verið ein sú mest selda í sumar. Miðasala á tónleikana í Háskólabíói hefst 8. september. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×