Lífið

Charlie Sheen í fríi með fyrrverandi

Brooke Mueller og Charlie Sheen eru saman í fríi og vilja reyna að vera góðir foreldrar.
Brooke Mueller og Charlie Sheen eru saman í fríi og vilja reyna að vera góðir foreldrar. Nordicphotos/Getty
Vandræðagemlingurinn Charlie Sheen og fyrrverandi eiginkona hans, Brooke Mueller, hafa ákveðið að grafa stríðsöxina ef marka má síðustu fregnir. Þessa dagana eru hjónin fyrrverandi stödd í Mexíkó í fríi ásamt tveggja ára tvíburabræðrunum sem þau eiga saman. Sheen segir þau ekki ætla að taka saman aftur heldur séu þau einungis „góðir vinir sem eru að reyna að vera góðir foreldrar".

Mueller og Sheen skildu fyrr á þessu ári og gekk mikið á í aðdraganda skilnaðarins. Til að mynda var Mueller á tímabili hrædd um líf sitt vegna drykkju og hótana Sheens.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×