Lífið

Vill leika Indy aftur

indy 5? Harrison Ford hefur áhuga á að leika fornleifafræðinginn Indiana Jones í fimmtu myndinni.
indy 5? Harrison Ford hefur áhuga á að leika fornleifafræðinginn Indiana Jones í fimmtu myndinni.
Harrison Ford hefur mikinn áhuga á að leika í fimmtu myndinni um fornleifafræðinginn Indiana Jones.

„Ef við gerum handrit sem allir eru ánægðir með þá er ég til í það,“ sagði leikarinn en síðasta mynd kom út fyrir þremur árum.

„Ég myndi leika þessa persónu aftur með glöðu geði. En eins og staðan er núna veit ég ekkert hvernig söguþráðurinn gæti orðið.“

Hinn 69 ára Ford lék síðast í Cowboys and Aliens á móti Daniel Craig. „Mig langaði til að vinna með Daniel. Hann er mjög hæfileikaríkur leikari og skemmtilegur náungi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×