Lífið

Stjórnandinn spáir Rúnari velgengni á Cannes

Frédéric Boyer er hrifinn af kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjallinu, en hann er listrænn stjórnandi Directors Fortnight-flokksins á Cannes. Nordic Photos/AFP
Frédéric Boyer er hrifinn af kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, Eldfjallinu, en hann er listrænn stjórnandi Directors Fortnight-flokksins á Cannes. Nordic Photos/AFP
Frédéric Boyer, listrænn stjórnandi Directors Fortnight-flokknum á Cannes, segir að Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, sé í alveg sérstöku dálæti hjá sér en þetta kemur fram í viðtali við hann í fagtímaritinu Cineuropa.

Boyer tiltekur einnig sænsku kvikmyndina Play eftir Ruben Ostlund og svo þrjár aðrar franskar kvikmyndir. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum keppir kvikmynd Rúnars í tveimur flokkum á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem hefst í þessari viku; annars vegar í Camera d'Or sem veitt eru fyrir bestu fyrstu kvikmynd og svo í áðurnefndum Directors Fortnight-flokki en það er franska leikstjórasambandið sem stendur fyrir þeim.

Rúnar heldur út til Cannes ásamt fríðu föruneyti en þegar hefur verið tilkynnt að sölufyrirtækið Trust Nordisk muni reyna að koma myndinni á framfæri á alþjóðlegum markaði.

Trust Nordisk er aðeins með annan leikstjóra á sínum snærum en það er Lars von Trier, danski sérvitringurinn, sem keppir um sjálfan Gullpálmann með kvikmynd sinni Melancholia.

Meðal þeirra sem verða með Rúnari á rauða dreglinum í Cannes má nefna Benedikt Erlingsson, Kjartan Sveinsson og Elmu Lísu Gunnarsdóttur ásamt aðalleikurunum Margréti Helgu Jóhannesdóttur og Theódór Júlíussyni. -fgg


Tengdar fréttir

Kvikmyndin Eldfjall keppir í Cannes

Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar leikstjóra, verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 13. maí. Eldfjall keppir bæði í flokknum Directors Fortnight og um Camera d´Or verðlaunin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framleiðendum Eldfjalls hjá Zik Zak kvikmyndum.

Smókingurinn passar ennþá

Rúnar Rúnarsson virðist vera í miklum metum á kvikmyndahátíðinni í Cannes því kvikmynd hans Eldfjall hefur verið valin í tvo keppnisflokka. Þetta er í þriðja sinn sem Rúnar tekur þátt. „Þetta er eins gott og maður þorði að vona; þetta mun hjálpa myndinni að ná til breiðari og stærri hóps,“ segir Rúnar Rúnarsson kvikmyndagerðarmaður. Í gær var tilkynnt að kvikmynd Rúnars, Eldfjall, myndi keppa í tveimur flokkum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Annars vegar keppir hún í Directors’ Fortnight, þar sem stór nöfn á borð við Martin Scorsese, Francis Ford Coppola og George Lucas komu fyrst fram á sjónarsviðið, og hins vegar um Camera d’Or eða fyrir bestu fyrstu kvikmynd leikstjóra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×