Jakob: Fékk opin skot og hélt bara áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. maí 2011 07:00 Jakob með kærustu sinni, Edith Guðmundsdóttur Hansen, eftir leikinn í gær. Mynd/Sundsvall Tidning
Jakob Örn Sigurðarson spilaði líklega einhvern besta leik sinn á ferlinum er lið hans, Sundsvall Dragons, varð Svíþjóðarmeistari eftir sigur á Norrköping Dolphins í oddaleik um sænska meistaratitilinn í gær. Jakob skoraði alls 31 stig í leiknum, þar af 26 í fyrri hálfleik er Sundsvall stakk hreinlega af. Norrköping náði aldrei að ógna forystu Sundsvall að ráði eftir það. „Ég veit ekki hvað ég á að segja. Það er bara rosalegt að detta í svona stuð í leik sem þessum. Það gerist ekki oft og þetta var í raun bara fáránlegt," sagði Jakob í samtali við Fréttablaðið en samtals setti hann niður sjö þriggja stiga skot í ellefu tilraunum. „Eftir að ég hitti úr fyrstu tveimur skotunum leið mér rosalega vel í öllu því sem ég gerði. Ég fékk opin skot og hélt bara áfram – að sjálfsögðu."Hann segir að liðið allt hafi spilað vel í gær og því hafi það staðið uppi sem sigurvegari. „Kaninn okkar, Alex Wesby, er ótrúlegur leikmaður og örugglega einn besti Kani sem ég hef spilað með á ferlinum. Hann er frábær varnarmaður og spilar af hörku allan tímann," sagði Jakob og minntist einnig á landa sinn, Hlyn Bæringsson, sem gekk til liðs við félagið í fyrra en Jakob er á sínu öðru ári. „Hlynur hefur haft mikil áhrif á liðið. Það sem okkur vantaði í fyrra var maður sem berst fyrir liðið, tekur mikið af fráköstum og skorar mikilvægar körfur. Hann er búinn að breyta miklu og er mjög mikilvægur hlekkur." Jakob varð Íslandsmeistari með KR árið 2009 og segir alltaf sætt að vinna titla. „Mér líður frábærlega og þetta er alltaf jafn skemmtilegt."
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira