Lífið

Tónlistarveisla í eyðimörkinni

Áhorfandi Aldrei þessu vant var Rihanna meðal áhorfenda og tók sig vel út í gallastuttbuxum með hatt.
Áhorfandi Aldrei þessu vant var Rihanna meðal áhorfenda og tók sig vel út í gallastuttbuxum með hatt.
Það var skammt stórra högga á milli á tónlistarhátíðinni Coachella um helgina enda er hún ein sú stærsta sinnar tegundar. Gestir hátíðarinnar dilluðu sér í 30 stiga hita og sól við tóna frá hljómsveitum á borð við The Strokes, The National, Kings of Leon, Arcade Fire, Mumford and Sons, Robyn og Kanye West.

Hilton-systurnar, Kelly Osbourne, Katy Perry, Rihanna, Diane Kruger og David Hasselhoff lögðu leið sína í eyðimörkina fyrir utan Los Angeles til að njóta tónlistarveislunnar.

Brosandi Kelly Osbourne skemmti sér mjög vel í þvögunni.

Sumarlegar systur Nicky og Paris Hilton láta sig sjaldan vanta á mannfögnuði og virtust í miklu stuði.

Í dömuskyrtu. Kanye West tróð upp á sunnudagskvöldinu og vakti athygli fyrir að klæðast skyrtu úr sumarlínu kvenfatamerkisins Celine.

Íslandsvinkona Hin sænska Robyn fer gjarnan ótroðnar slóðir í fatavali og er oftar en ekki undir áhrifum tíunda áratugarins eins og á tónleikum sínum á Coachella.

Í gulli Florence Welch, söngkona sveitarinnar Florence and the Machine, var smart í gullstuttbuxum og blúnduslá.

Nordicphotos/getty

Sítt Pils Leikkonan Diane Kruger naut ljúfra tóna klædd í sítt pils og með hatt.

Heitt Julian Casablancas, forsprakki hljómsveitarinnar The Strokes, var hress á bak við hljóðnemann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×