Lífið

Fór í alþjóðlegar vinnubúðir til Búdapest

Naut sín í Búdapest Frosta „Gringo“ Runólfssyni var boðið í samvinnuverkefni kvikmyndagerðarmanna í Búdapest ásamt fjórum öðrum Íslendingum.Fréttablaðið/valli
Naut sín í Búdapest Frosta „Gringo“ Runólfssyni var boðið í samvinnuverkefni kvikmyndagerðarmanna í Búdapest ásamt fjórum öðrum Íslendingum.Fréttablaðið/valli
„Ég fékk mjög mikið út úr þessari ferð og tek mikinn lærdóm með mér aftur heim,“ segir Frosti Jón „Gringo“ Runólfsson kvikmyndagerðamaður en hann er nýkominn til landsins eftir átta daga dvöl í alþjóðlegum vinnubúðum kvikmyndagerðarmanna í Búdapest, sem nefnast Moving Districts.

Frosta var boðið út ásamt fjórum Íslendingum, þeim Ágústu Jóhannesdóttur, Antoni Mána Svanssyni og Gunnari Auðuni Jóhannssyni, en Frosti er nemandi í Kvikmyndaskólanum og hefur heimildarmyndirnar Mínus og Meinvill í myrkrinu á ferilskrá sinni.

Moving Districts er á vegum listamanna i Búdapest sem vilja láta reyna á alþjóðlega samvinnu í kvikmyndagerð en þetta er í annað skipti sem vinnubúðirnar voru haldnar. Öllum þátttakendunum var skipt í hópa og gert að setja saman eina stuttmynd.

„Okkar stuttmynd var um sannsögulegan harmleik sem átti sér stað í bænum og því áhugavert að vinna rannsóknarvinnuna á bak við myndina sjálfa. Ég kynntist fullt af góðu fólki og myndaði sambönd sem eiga eflaust eftir að nýtast í framtíðinni. Stuttmyndin sem kom út úr þessu verkefni var ekki endilega tilgangur ferðarinnar heldur lærði ég svo margt annað nytsamlegt í sambandi við kvikmyndagerð.“

Skilyrði til að komast inn á Moving Districts var að koma með stuttmynd um íslenskan listamann, en Frosti hefur undanfarið verið að vinna að heimildarmynd um íslensku listakonuna Gabríelu Friðriksdóttur og fannst því tilvalið að sýna myndina.

„Ég fékk mjög góðar viðtökur við henni og stefni nú á að sýna hana ásamt nýjustu afurð minni, myndinni Hudas Hudas, á Skjaldborg í sumar.“- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×