Lífið

Murray sem Roosevelt

leikur roosevelt Bill Murray ætlar að túlka Franklin D. Roosevelt í nýrri kvikmynd.
leikur roosevelt Bill Murray ætlar að túlka Franklin D. Roosevelt í nýrri kvikmynd.
Leikarinn Bill Murray ætlar að túlka 32. forseta Bandaríkjanna, Franklin Delano Roosevelt, í nýrri kvikmynd sem er í bígerð.

Myndin er byggð á breska útvarpsleikritinu Hyde Park on the Hudson. Hún gerist árið 1939 og fjallar um umdeilt samband Roosevelts við frænku sína Margaret Stuckley meðan á fyrstu heimsókn bresku konungshjónanna til Bandaríkjanna stóð.

Leikstjóri myndarinnar verður Robert Michell, sem hefur áður sent frá sér gamanmyndina Notting Hill.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×