Lífið

Alvarlegt samband

aldursmunurinn er 24 ár Scarlett Johansson og Sean Penn mættu saman í brúðkaup leikkonunnar Reese Witherspoon.nordicphotos/getty
aldursmunurinn er 24 ár Scarlett Johansson og Sean Penn mættu saman í brúðkaup leikkonunnar Reese Witherspoon.nordicphotos/getty
Leikkonan Scarlett Johansson mætti með Sean Penn upp á arminn í brúðkaup Reese Witherspoon og Jim Toth í síðustu viku og þykir það sanna að parið sé sannarlega miklu meira en aðeins vinir.

„Scarlett er kúnni Jim og þess vegna var hún í brúðkaupinu. Engan grunaði að hún mundi taka Sean með sér. Þetta er stórt skref af þeirra hálfu og sýnir Hollywood-fólkinu að samband þeirra er orðið alvarlegt,“ var haft eftir innanbúðarmanni.

Penn og Johansson sáust fyrst saman í frumsýningarpartíi kvikmyndarinnar Black Swan og í mars voru fluttar fréttir af því að þau hefðu eytt heilum degi saman í Mexíkó. Bæði eru Penn og Johansson tiltölulega nýskilin við maka sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×