Lífið

Úr þungarokki í þjóðlagapopp

Kristján fetar nýjar slóðir á nýrri stuttskífu sem nefnist From This Day Forward. Fréttablaðið/Pjetur
Kristján fetar nýjar slóðir á nýrri stuttskífu sem nefnist From This Day Forward. Fréttablaðið/Pjetur
„Ég er miklu mýkri en leðurjakkinn gefur til kynna," segir Kristján B. Heiðarsson, trommari og forsprakki þungarokkssveitarinnar Changer.

Kristján, sem starfar sem leikskólakennari, hefur gefið út stuttskífuna From This Day Forward þar sem hann spilar og syngur þjóðlagaskotin popplög sem eru órafjarri þeirri tónlist sem hann hefur hingað til flutt. „Það hafa margir verið að benda mér á að þeir hafi ekki átt von á svona fjölbreytni frá mér. Það er gaman að koma á óvart," segir Kristján og viðurkennir að ekki séu allir jafnsáttir við tónlistarsmekk sinn.

„Ég hef lent í mörgum rifrildum við félaga mína um það sem ég hlusta á sem telst ekki gjaldgengt í metalheiminum. En ég er bara á því að góð tónlist er góð tónlist, alveg sama hvaða stefnu hún tilheyrir. Ég hlusta bara á það sem mér sýnist og það kemur engum öðrum við," segir hann léttur.

Lögin þrjú sem eru á stuttskífunni voru tilbúin fyrir tveimur árum.

„Eins og kannski heyrist í textunum snýst þetta um stúlku. Þessi lög eru ákveðið uppgjör við nokkurra ára tímabili í mínu lífi og þess vegna vildi ég koma þessu frá mér áður en ég færi gera meira," segir Kristján, sem er að undirbúa stóra sólóplötu sem verður öll sungin á íslensku.

Tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds sér um hljómborðsleik og forritun á stuttskífunni, auk þess að eiga heiðurinn af upptökum og hljóðblöndun. Til að byrja með verður From This Day Forward eingöngu fáanleg í gegnum tónlistarveituna Gogoyoko.com. -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×